Sérhæfing
Suða ehf hefur sérhæft sig í suðuvinnu á allskyns málmum og málmblöndum og hefur tekið að að sér krefjandi verkefni fyrir orkuveitur og orkuver, svo sem hitaveitulagnir, gufulagnir (þrýstilagnir) og kaldavatnslagnir.
Reynsla fyrirtækisins nær meðal annars til suðu á:
- Steypustáli
- Steypujárni
- Manganstáli
- Hardokkstáli
- Suðu á ryðfríustáli 304, 309 og 316.
Fyrirtækið hefur einnig sérhæft sig í réttingum á stáli með hitameðferð og tileinkað sér allskyns lóðningar, samanber koparlóðning, silfurkveiking og tinlóðning.
Ertu með erfitt verkefni fyrir höndum? Hafðu samband og leyfðu okkur að vinna í því fyrir þig.